12.04.2019![Fréttir úr 1. bekk](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/Paskafondur-og-arshatid-i-1.-bekk/a (Medium).JPG?proc=AlbumMyndir)
Fréttir úr 1. bekk
Mikið var um að vera hjá 1. bekk síðustu vikuna fyrir páskafrí. Börnin föndruðu m.a. páskaföndur og svo var vel heppnuð árshátíð á föstudeginum þar sem börnin fluttu nokkur lög úr Ávaxtakörfunni.
Nánar12.04.2019![Páskaleyfi 15. - 22. apríl](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/easter.jpg?proc=AlbumMyndir)
Páskaleyfi 15. - 22. apríl
![Páskaleyfi 15. - 22. apríl](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/easter.jpg?proc=AlbumMyndir)
Páskaleyfi hefst mánudaginn 15. apríl. Álftamýri er opin fyrir skráð börn dagana 15. - 17. apríl. Kennsla hefst að loknu páskaleyfi skv. stundaskrá þriðjudaginn 23. apríl.
Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska.
Nánar09.04.2019![Páskabingó miðvikudaginn 10. apríl](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/Páskabingó 2019.jpg?proc=AlbumMyndir)
Páskabingó miðvikudaginn 10. apríl
![Páskabingó miðvikudaginn 10. apríl](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/Páskabingó 2019.jpg?proc=AlbumMyndir)
Páskabingó foreldrafélags Álftanesskóla er haldið miðvikudaginn 10.apríl í íþróttamiðstöðinni. Athugið breytta tímasetningu en bingó fyrir nemendur og foreldra barna í Álftanesskóla er kl. 17:30 til 18:30 og pizzaveisla í lokin kl. 18:30. Sjá nánar...
Nánar26.03.2019![Skíðaferð mánudaginn 1. apríl ef færð og veður leyfa](/library/Myndir/Merki-skolans/Alftanesskoli_nytt.jpg?proc=AlbumMyndir)
Skíðaferð mánudaginn 1. apríl ef færð og veður leyfa
![Skíðaferð mánudaginn 1. apríl ef færð og veður leyfa](/library/Myndir/Merki-skolans/Alftanesskoli_nytt.jpg?proc=AlbumMyndir)
Við eigum aftur pantað í Bláfjöllum fyrir 5. - 10.bekk mánudaginn 1. apríl. Við vonum að veðrið leiki við okkur þann daginn og viljum við biðja foreldra/forráðamenn að fylgjast með boðleiðum frá skóla þ.e. skilaboðum, tölvupóstum, heimasíðu og hér á...
Nánar21.03.2019![Lestrarátak Ævars vísindamanns - samstarf heimila og skóla](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/Lestraratak-aevars-visindamanns/IMG_9039 (Medium).JPG?proc=AlbumMyndir)
Lestrarátak Ævars vísindamanns - samstarf heimila og skóla
Í lestrarátaki Ævars vísindamanns 2019 var met slegið í lestri bóka. Samtals lásu íslenskir krakkar 91.734 bækur á tveimur mánuðum, en foreldrar þeirra 5.904 bækur. Yngsta stig í Álftanesskóla fékk viðurkenningu fyrir hlutfallslega mestan lestur á...
Nánar20.03.2019![Skíðaferð aflýst vegna óvissu um veður](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/noski.jpeg-.jpg?proc=AlbumMyndir)
Skíðaferð aflýst vegna óvissu um veður
![Skíðaferð aflýst vegna óvissu um veður](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/noski.jpeg-.jpg?proc=AlbumMyndir)
Við þurfum því miður að aflýsa ferðinni í Bláfjöll á morgun fimmtudaginn 21. mars vegna mikillar óvissu í veðurspám. Við erum að skoða nýja dagsetningu í byrjun apríl nánar auglýst síðar. Skólastarf með hefðbundnum hætti samkvæmt stundaskrá á morgun...
Nánar15.03.2019![Stóra upplestrarkeppnin](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/Stora-upplestrarkeppnin/IMG_9035 (Medium).JPG?proc=AlbumMyndir)
Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin fór fram í morgun við skemmtilega athöfn. Þátttakendur voru 14 talsins og lásu fyrst úr sögunni "Benjamín dúfa" eftir Friðrik Erlingsson og svo ljóð að eigin vali. Ungu lesendurnir stóðu sig allir með mikilli prýði og fengu...
Nánar14.03.2019![Fuglafit, fréttabréf Álftanesskóla](/library/Myndir/Merki-skolans/Alftanesskoli_nytt.jpg?proc=AlbumMyndir)
Fuglafit, fréttabréf Álftanesskóla
![Fuglafit, fréttabréf Álftanesskóla](/library/Myndir/Merki-skolans/Alftanesskoli_nytt.jpg?proc=AlbumMyndir)
Fuglafit, fréttabréf Álftanesskóla hefur nú verið gefið út og má finna það á heimasíðu skólans undir Skólinn - Fréttabréf.
Nánar14.03.2019![Skíða- og útivistarferð hjá 5. - 10.bekk](/library/Skrar/Skolaarid-2018-2019/99982.jpg?proc=AlbumMyndir)
Skíða- og útivistarferð hjá 5. - 10.bekk
![Skíða- og útivistarferð hjá 5. - 10.bekk](/library/Skrar/Skolaarid-2018-2019/99982.jpg?proc=AlbumMyndir)
Nú stendur til að fara í hina árlegu útivistar-, skíða- og brettaferð. Skólinn á pantað fimmtudaginn 21. mars í Bláfjöllum. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur taki þátt í ferðinni. Ýmist eru nemendur í gönguferðum, sleðaferðum eða á...
Nánar05.03.2019![Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/6ipo6XLXT.png?proc=AlbumMyndir)
Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins
![Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/6ipo6XLXT.png?proc=AlbumMyndir)
Foreldrakönnun Skólapúlsins lauk formlega í gær 4. mars og var svarhlutfallið þá 70%. Æskilegt er að svarhlutfallið sé a.m.k. 80% til að niðurstöðurnar séu samanburðarhæfar við niðurstöður annarra skóla.
Í von um að við náum þessu æskilega...
Nánar01.03.2019![Skólapúlsinn 64% svarhlutfall](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/TAKK.PNG?proc=AlbumMyndir)
Skólapúlsinn 64% svarhlutfall
Við viljum þakka þeim foreldrum sem hafa nú þegar tekið þátt í foreldrakönnun Skólapúlsins fyrir að gefa sér tíma til að svara könnuninni. Við höfum nú náð lágmarks svarhlutfalli sem er 60% en til að fá niðurstöður sem eru samanburðarhæfar öðrum...
Nánar