Öskudagur miðvikudaginn 2. mars - skertur skóladagur
28.02.2022
![Öskudagur miðvikudaginn 2. mars - skertur skóladagur Öskudagur miðvikudaginn 2. mars - skertur skóladagur](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2021-2022/kids-carnival-group-children-masks-bouncing-children-59294767.jpg?proc=ContentImage)
Miðvikudaginn 2. mars er öskudagur og er sveigjanlegt skólastarf hjá nemendum þann dag.
Skóladagurinn hefst klukkan 9:00 og lýkur klukkan 12.10 þ.e. eftir hádegisverð. Nemendur í 10. bekk koma á mismunandi tímum í skólann en upplýsingar um þeirra viðveru fá þeir hjá umsjónarkennurum. Skólinn er opinn frá klukkan 8.00 fyrir þá nemendur sem þurfa að koma fyrr, þeir mæta þá á bókasafnið. Á öskudag ætlum við að brjóta upp skólastarfið og gera okkur glaðan dag með ýmsum hætti. Gaman væri ef nemendur og starfsmenn kæmu í búningum eða furðufötum í tilefni dagsins.
Álftamýri frístundaheimili tekur við þeim börnum sem þar eru skráð eftir að skóla lýkur.