Gjöf frá Kvenfélagi Álftaness
28.01.2022
![Gjöf frá Kvenfélagi Álftaness Gjöf frá Kvenfélagi Álftaness](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2021-2022/Kvenfélagið.jpg?proc=ContentImage)
Forsvarskonur Kvenfélags Álftaness komu færandi hendi í gær og gáfu skólanum Lego námskubba af ýmsum gerðum en Lego hefur reynst vel í vinnu með nemendum t.d. með tilfinninga- og félagsvanda og með einhverfum börnum. Sýnt hefur verið fram á að þessi vinna gæti bætt samskiptahæfni, félagsfærni og rökhugsun nemenda.
Við þökkum kærlega fyrir þessar höfðinglegu gjafir sem munu svo sannarlega nýtast nemendum og kennurum vel í skólastarfinu.