Bangsagetraun á Alþjóðlega bangsadeginum
02.11.2021
![Bangsagetraun á Alþjóðlega bangsadeginum Bangsagetraun á Alþjóðlega bangsadeginum](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2021-2022/5b8580b23cccd129008b4575.jpg?proc=ContentImage)
Í síðustu viku var Alþjóðlegi bangsadagurinn en hann er haldinn hátíðlegur 27. október á fæðingardegi Theodore Roosevelt fyrrum bandaríkjaforseta, eða Teddy (bangsi) eins og hann var kallaður.
Af því tilefni var bókasafnið með bangsagetraun þar sem nemendur svöruðu léttum spurningum og skiluðu inn. Í gær voru 3 heppnir dregnir út en þeir fengu bangsa í verðlaun.
Þau heppnu voru Vignir í 2. BSS, Embla í 2. GDA og Hrafnhildur í 4. KFW/LBI. Við óskum þeim innilega til hamingju með nýju bangsana.
Hér má sjá myndir af þeim.