Skólasetning hjá nemendum í 1. bekk - ATHUGIÐ BREYTINGAR
20.08.2021
Kæru foreldrar / forráðamenn Skólasetning Álftanesskóla fer fram í sal skólans þriðjudaginn 24. ágúst. Foreldrar barna í 1. bekk geta komið með börnum sínum en þurfa að bera grímu og sótthreinsa sig. Nemendur fara heim að lokinni skólasetningu.
Nemendahópnum er skipt í tvennt vegna fjöldatakmarkana.
Tímasetning skólasetninga:
1. bekkur - nemendur í stafrófsröð A - H kl. 11:00
1. bekkur - nemendur í stafrófsröð I - Ö kl. 13:00
Bestu kveðjur
Stjórnendur
Álftanesskóla