Vorleikar á morgun og skólaslit hinn daginn
Vorleikarnir eru á morgun mánudag og þá er skertur skóladagur. Skólinn hefst hjá nemendum kl. 9:00 og lýkur eftir hádegismat, bókasafnið er opið frá klukkan 8:00 fyrir þá nemendur sem á þurfa að halda og frístundaheimilið Álftamýri tekur við nemendum sem þar eru skráðir frá kl. 13:00.
Vorleikarnir fara fram utanhúss og því er mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Nemendur fara með með sínum umsjónarkennara á milli íþróttastöðva víða um skólalóðina.
Útskrift nemenda í 10. bekk er á morgun kl. 17:00 og árshátíð elsta stigs í kjölfarið.
Á þriðjudaginn eru skólaslit hjá nemendum í 1. - 9. bekk og fara þau fram í umsjónarstofum nemenda þar sem umsjónarkennarar afhenda vitnisburði.
Tímasetningar skólaslita verða sem hér segir:
Kl. 9:00 1., 2., 5., 6. og 7. bekkur
Kl. 10:00 3., 4., 8. og 9. bekkur
Gert er ráð fyrir að skólaslitin taki um 30-40 mín.
Við minnum enn og aftur á að því miður geta foreldrar/forráðamenn nemenda í 1. - 9. bekk ekki komið með á skólaslitin eins og áður hefur komið fram vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmæla frá yfirvöldum. Við viljum biðja foreldra/forráðamenn að virða það.
Með fyrirfram þökk og
kveðju stjórnendur Álftanesskóla