Upplýsingar um COVID-19
13.03.2020
Á þessari síðu mun skólinn halda til haga upplýsingum og leiðbeiningum vegna COVID-19 útbreiðslu á Íslandi og þeirra aðgerða sem grípa þarf til í Álftanesskóla.Almennur upplýsingavefur var opnaður 13. mars: www.covid.is
Heilbrigðisráðherra hefur boðað blaðamannafund föstudaginn 13. mars kl. 11:00. Ef upplýst verður um ákvarðanir sem varða skólahald á þeim fundi mun skólastjóri senda nemendum, foreldrum og starfsmönnum póst um málið fyrir lok vinnudags.
Nánari fréttir koma þegar þær berast.
Með samstarfskveðju,
stjórnendur Álftanesskóla.