Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins
05.03.2019
![Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins Framlengdur frestur á foreldrakönnun Skólapúlsins](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/6ipo6XLXT.png?proc=ContentImage)
Í von um að við náum þessu æskilega svarhlutfalli hefur Skólapúlsinn ákveðið að framlengja könnunina um viku eða til miðnættis þann 11. mars næstkomandi. Við viljum enn og aftur hvetja alla þá sem eiga eftir að svara foreldrakönnuninni að gera það í þessari viku.
Jafnframt viljum við þakka þeim sem þegar hafa svarað og minna á að þessi könnun er mjög mikilvægur liður í að bæta og efla skólastarf Álftanesskóla.
Foreldrar svara könnuninni á síðunni https://foreldrar.skolapulsinn.is/ hægt er að svara á snjallsímum, spjaldtölvum og venjulegum tölvum.