Hollt nesti
08.11.2018
Kæru foreldrar/forráðamenn
Morgunhressing er fastur liður í stundaskrá nemenda. Við viljum með þessu bréfi hvetja foreldra til að hugsa um hollustu og fjölbreytni þessa millibita. Einnig viljum hvetja foreldra barna sem ekki eru í áskrift að hádegismat að hvetja börnin til að taka með sér hollt og gott hádegisnesti. Hollt fæði stuðlar að vellíðan nemenda og eykur hæfni til náms.
Bestu kveðjur
Kennarar og stjórnendur Álftanesskóla
Hollt nesti - bréf til forelda 8. nóvember 2018