Skólaþing Garðabæjar - Hvað finnst þér mikilvægast?
Skólaþing Garðabæjar verður haldið miðvikudaginn 7. mars nk. frá kl. 17:30-19:30 í sal Flataskóla við Vífilsstaðaveg. Íbúar, foreldrar/forráðamenn og aðrir áhugasamir um skólamál, eru velkomnir á skólaþingið til að taka þátt í umræðum um skólasamfélagið í Garðabæ, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla.
Sjá nánar
Á þinginu verður leitast leiða við að svara spurningum eins og ,,Hvað er best við skólasamfélagið í Garðabæ?“ og ,,Hvað mætti vera betra við skólasamfélagið í Garðabæ?“ Umræður verða á borðum þar sem þátttakendum er skipt niður í hópa. Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar grunnskóla, og Viktoría Jensdóttir, formaður leikskólanefndar stýra fundinum. Barnakór leikskólans Hæðarbóls syngur nokkur vel valin lög fyrir gesti í upphafi þings og í lok fundar verður hinn stórskemmtilegi Bergur Ebbi með uppistand fyrir fundargesti.
Húsið opnar kl. 17:15 og boðið verður upp á barnagæslu í Flataskóla á meðan á fundinum stendur. Einnig geta fundargestir fengið sér súpu og brauð sem verður í boði á staðnum. Allar upplýsingar um skólaþingið má sjá á vef Garðabæjar, gardabaer.is.
Í gildandi skólastefnu Garðabæjar er metnaður, virðing, sköpun og gleði höfð að leiðarljósi. Stefnan myndar umgjörð um faglegt skólastarf í bænum en í henni koma fram helstu áherslur skólastarfs í Garðabæ. Hverjum skóla er ætlað að marka sér sérstöðu með því að setja sér markmið og velja leiðir innan ramma aðalnámskrár og skólastefnu.
Með því að taka þátt í skólaþingi Garðabæjar gefst tækifæri fyrir íbúa til að hafa áhrif á skólamál bæjarins og koma fram með áherslur um forgangsröðun í skólamálum og hvar má gera betur í starfi grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla.