Jóla- og góðgerðadagurinn og ljósin tendruð
29.11.2017
Laugardaginn 2. desember verður heilmikil jóladagskrá í Garðabæ á Álftanesi og á Garðatorgi.Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi
Fjölbreytt dagskrá innandyra í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi frá kl. 12-16 á vegum Foreldrafélags Álftanesskóla og hinna ýmsu félagasamtaka. Handverksmarkaður, uppboð, tombóla, kaffishús, tónlistaratriði, tískusýning, dans, bingó, sirkus o.fl.
Þegar dagskránni lýkur innandyra verða ljósin tendruð á jólatrénu fyrir utan íþróttamiðstöðina kl. 16:10. Þar verður tónlist og dansað í kringum jólatréð, jólasveinar mæta á staðinn.
Viðburðir á fésbókinni:
Jóla- og góðgerðardagur https://www.facebook.com/events/1559868107405409/
Ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi
https://www.facebook.com/events/1981871382096391/
Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi
Á Garðatorgi verða ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Asker og dagskrá fyrir utan ráðhúsið sem hefst kl. 16 um daginn. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar spilar, barnakór Hæðarbóls syngur, barnakór Sjálandsskóla syngur og jólasveinar mæta á staðinn.
Fyrr um daginn eða kl. 14.30 verður leikritið Ævintýrið um augastein sýnt í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi. Í tilefni dagsins verður ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi.
Viðburður í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar: http://www.gardabaer.is/forsida/vidburdir/vidburdur/2017/12/02/Ljosin-tendrud-a-jolatrenu-a-Gardatorgi/
Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar: https://www.facebook.com/events/1662761083762282/