Skólasetning 2017
11.08.2017
Skólasetning Álftanesskóla fer fram í íþróttasal Íþróttamiðstöðvar þriðjudaginn 22. ágúst 2017.
Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skólasetningu.
Nemendur skólans mæta til skólasetningar eftir árgöngum:
- Nemendur í 7. - 10. bekk mæta kl. 09:00
- Nemendur í 4. - 6. bekk mæta kl. 09:45
- Nemendur í 2. - 3. bekk mæta kl 10:30
- Nemendur 1. bekkjar eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara þriðjudaginn 22. ágúst.
Miðvikudaginn 23. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá öllum nemendum skólans.
Foreldrar barna í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags 23. ágúst Skólasetning í 1. bekk fer fram á Sal skólans kl. 8:15.
Að lokinni skólasetningu fara nemendur og foreldrar með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar.