Innritun nemenda
Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2011) og 8. bekk (f. 2004) fer fram dagana 1. - 31. mars nk. Innritað er á vef Garðabæjar www.gardabaer.is. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 31. mars nk.
Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.- 9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 31. mars nk.
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á tómstundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á vef Garðabæjar www.gardabaer.is. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á tómstundaheimilum.
Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:
Álftanesskóli sími 540-4700, www.alftanesskoli.is
Flataskóli sími 513-3500, www.flataskoli.is
Garðaskóli sími 590-2500, www.gardaskoli.is
Hofsstaðaskóli sími 590-8100, www.hofsstadaskoli.is
Sjálandsskóli sími 590-3100, www.sjalandsskoli.is
Barnaskóli Hjallastefnunnar sími 555-7710, www.hjalli.is/barnaskolinn
Alþjóðaskólinn sími 590-3106, www.internationalschool.is
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2017-2018 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt á vef Garðabæjar www.gardabaer.is
Hér má sjá yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar haust 2017
Deildarstjóri skóladeildar Garðabæjar.