Laus staða hjá Álftanesskóla
Álftanesskóli auglýsir eftir íþróttakennara til starfa í 100% starf. Óskum að ráða viðkomandi sem fyrst.
Um er að ræða kennslu í íþróttum og náttúrufræði.
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru 450 nemendur. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd undir fjöðrum skólans sem eru: Vinátta – Vísindi - Listir og – allir eru einstakir. Álftanesskóli er Grænfánaskóli og starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.Unnið er að þróun lestrarstefnu skólans og einnig er unnið að þróun fjölbreyttra kennsluhátta t.d. eftir vinnuaðferðum um ,,Vörður og vegvísa“ í öllum árgöngum skólans.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla og með reynsla af kennslu í íþróttum og sundi.
- Góð samskipta- og skipulagsfærni
- Áhugi á nýbreytni- og þróunarstarfi.
- Reynsla af kennslu í íþróttum, sundi og náttúrufræði
- Að standa vörð um nám og velferð nemenda
- Að vera í samstarfi við foreldra nemenda
- Að taka þátt í þróun skólastarfsins
Daglegur vinnutími er öllu jafna frá 8:00-16:00.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2016.
Nánari upplýsingar um störfin veita Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri, markus@alftanesskoli.is og í síma 8215007/5404700 eða Erna I. Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri erna@alftanesskoli.is. og í síma 8215009/5404700.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.