Uppeldi til ábyrgðar - byrjendanámskeið í ágúst
31.05.2016
Félagið Uppbygging sjálfsaga í samvinnu við Álftanesskóla auglýsir byrjendanámskeið í Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga I í Álftanesskóla dagana 8. - 9. ágúst. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Hildur Karlsdóttir.
Báðar hafa þær réttindi frá Diane Gossen til að kenna þessi fræði og langa reynslu í að nýta þessar starfsaðferðir í skólastarfi og uppeldi.
Staður: Álftanesskóli
Tími: 8. og 9. ágúst kl. 9:00 - 16:00
Verð: 28.000 kr.
Innfalið eru námskeiðsgögn, matur og kaffi.
Skráning fer fram á netfanginu alftanesskoli@alftanesskoli.is fyrir 20. júní næstkomandi.
Sjá nánar auglýsingu.