Grænfána tískusýning á Kærleikunum.
03.12.2014
Grænfána tískusýning er árlegur viðburður og eitt af grænfánaverkefnum skólans sem eru með það meginmarkmið að tengja saman skólann og heimilin. Þátttakendur eru nemendur í 5. og 6. bekk og sýna þau búninga sem foreldrar eða fjölskyldurmeðlimir hafa tekið þátt í að búa til. Efnin sem notuð eru í sköpun á búningunum eru verðlaus og endurunnin.
Nemendurnir héldu sýningu síðastliðinni föstudag á Kærleikunum og svo aðra á laugardeginum á Jóla- og góðgerðadeginum.
Hér má sjá myndir frá tískusýningunni.