Elítan keppir í Stíl hönnunarkeppni félagsmiðstöðva
26.11.2014
Stíll er árleg hönnunarkeppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í
hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Keppnin í ár fer
fram laugardaginn 29. nóvember og er þema hennar "Tækni". Fyrir hönd
Elítunnar félagsmiðstöðvar Álftanesskóla keppa þær Ingibjörg Þór
Árnadóttir og Fanndís Kara Guðnadóttir undir umsjón Rakelar Tönju
Bjarnadóttur.Stíll 2014 verður haldinn í Hörpunni laugardaginn 29. nóvember kl. 15:00 - 17:00 og eru allir velkomnir.