Lesið í Nesið útikennsludagar
28.10.2014
Dagana 29. og 30. október verða útikennsludagarnir Lesið í Nesið. Um er að ræða skerta kennsludaga þar sem unnið verður frá kl. 9:00 til hádegis í fjölbreyttum útikennsluverkefnum.
Nemendur yngsta stigs (1.-3.bekkur) byrja á að mæta á bókasafnið báða dagana. Á miðvikudeginum munu krakkarnir fara í fjöruferð og vinna þar ýmis verkefni og á fimmtudeginum fara þeir á hreyfistöðvar víðs vegar um skólalóðina. Nemendur á mið og elsta stigi (4.-10.bekkur) byrja dagana á að mæta í heimastofur sínar. Þar verður þeim skipt upp í hópa og fara svo ýmist í gönguferðir um Nesið eða í stöðvavinnu við skólann báða dagana.
Mjög mikilvægt er að nemendur klæði sig eftir veðri.