Framkvæmdir á aðkomu að skólasvæðinu
23.08.2013
![Framkvæmdir á aðkomu að skólasvæðinu Framkvæmdir á aðkomu að skólasvæðinu](/library/Skrar/Skolaarid-2013-2014/2013.08.23_skólasvæðið skýringarmynd.png?proc=ContentImage)
Nú þegar hafa verið gerð malarbílastæði austan við leikskólann Krakkakot í tengslum við hlið sem þar er á girðingunni.
Framkvæmdin felst að öðru leyti í eftirfarandi:
- Nýr stígur meðfram vesturhlið leikskólalóðarinnar frá Breiðumýri inn á skólalóðina. Verklok áætluð 15. september.
- Sleppistæði og aðkomutorg við Breiðumýri. Sett verður hlið á skólaveginn þannig að mögulegt verður að loka á umferð um götuna á skólatíma. Verklok áætluð 15. september.
- Malbikun bílastæða og frágangur gangstétta milli sundlaugarsvæðis og Breiðumýrar. Verklok áætluð 15. október.