Skólastarfið haustið 2013
Skólasetning Álftanesskóla 2013
Skóli hefst föstudaginn 23. ágúst með skólasetningu og hefst kennsla mánudaginn 26. ágúst skv. stundaskrá. Skóladagatal er að finna hér á heimasíðunni. Innkauplistar verða birtir á vef skólans mánudaginn 19. ágúst.
1. Skólasetning Álftanesskóla fer fram í íþróttasal Íþróttamiðstöðvar föstudaginn 23. ágúst 2013. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum á skólasetningu.
Nemendur skólans mæta til skólasetningar eftir árgöngum:
- Nemendur í 7.- 10. bekk mæta kl. 09:00
- Nemendur í 4. - 6. bekk mæta kl. 09:45
- Nemendur í 2. - 3. bekk mæta kl 10 :30
- Nemendur 1. bekkjar eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara föstudaginn 23. ágúst.
Mánudaginn 26. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá öllum nemendum skólans.
Foreldrar barna í 1. bekk eru hvattir til að mæta með börnum sínum í upphafi fyrsta skóladags og svo lengi sem þörf krefur.
Að lokinni skólasetningu fara nemendur og foreldrar með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar.
2. Allir innkaupalistar verða komnir á vef skólans 19. ágúst og fást einnig á skrifstofu skólans.
3. Nýir nemendur í 2. - 10. bekk ásamt foreldrum sínum verða boðaðir sérstaklega af umsjónarkennurum og deildarstjórum að heimsækja skólann á tímabilinu 19 .- 22. ágúst hafi sú kynning ekki þegar farið fram.
4. Haustfundir með foreldrum verða vikuna 2. – 6. september (auglýst síðar)
5. Tómstundaheimilið Frístund opnar fyrir skráð börn í í Frístund í 1. – 4. bekk mánudaginn 26. ágúst að loknum skóladegi.
Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri.