12.05.2015
Skipulagsdagur föstudaginn 15. maí
Föstudaginn 15. maí næstkomandi er skipulagsdagur kennara og starfsmanna skólans og eru nemendur þá í fríí frá skólasókn.
Frístund er opin á skipulagsdaginn en foreldrar eiga að vera búnir að skrá börnin sín skv. pósti frá umsjónarmanni Frístundar. ...
Nánar12.05.2015
Margæsardagurinn
Margæsardagurinn var í gær og af því tilefni unnu nemendur ýmis verkefni tengd henni ásamt því að fara í gönguferðir um Nesið í von um að sjá margæsir.
Nánar07.05.2015
Opinn fundur foreldrafélags Álftanesskóla þriðjudaginn 12. maí kl. 20:00
Foreldrafélag Álftanesskóla stendur fyrir opnum fundi þriðjudaginn 12. maí kl. 20:00 í sal skólans. Efni fundarins er annars vegar staða húsnæðismála Álftanesskóla og hins vegar samræmdu könnunarprófin í Garðabæ.
Nánar07.05.2015
Fræðsla frá Ástráði og HIV-Ísland
Mánudaginn 4. maí fengu nemendur 10. bekkja fræðslu frá Ástráði, félagi læknanema, um kynheilbrigði. Fræðslan fór fram í kynjaskiptum hópum þar sem tveir læknanemar voru með hvorum hópi. Gerðu nemendur góðan róm að fræðslunni.
Einar Þór Jónsson kom...
Nánar07.05.2015
Margæsir mættar til leiks
Stór hópur margæsa mætti á íþróttavöllinn 5. maí síðastliðinn.
Hinn árlegi margæsardagur Álftanesskóla er 11. maí næstkomandi en þá vinna nemendur ýmis verkefni tengd margæsinni.
Nánar07.05.2015
Skíðaferðin í Bláfjöll
Föstudaginn 24. apríl fóru nemendur í 5. - 10. bekk í skíðaferð í Bláfjöll í blíðskaparviðri og heppnaðist ferðin mjög vel.
Nánar07.05.2015
Tónleikar tónlistarklúbbs Elítunnar 7. maí kl. 20
Tónleikar tónlistarklúbbs Elítunnar verða haldnir á hátíðarsal skólans fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00.
Aðgangseyrir kr.500 - kaffisala á staðnum. Allir velkomnir.
Nánar05.05.2015
Spurningakeppni grunnskólanna
Næstkomandi fimmtudag mætir lið Álftanesskóla liði Grunnskólans í Borgarfirði í undanúslitum. Keppnin fer fram í Hátíðarsalnum og hefst klukkan 15:00.
Nánar30.04.2015
Spurningakeppni grunnskólanna
Lið Álftanesskóla vann lið Laugalækjarskóla í spurningakeppni grunnskólanna 22 - 20. Næst mun lið Álftanesskóla keppa við Grunnskóla Borgarfjarðar í undanúrslitum.
Nánar27.04.2015
Unglistaleikarnir 29. og 30. apríl kl. 8:15
Unglistaleikarnir verða haldnir dagana 29. og 30. apríl og er þema leikanna í ár Barnasáttmálinn. Nemendum verður skipt í hópa og munu list- og verkgreinakennarar ásamt öðrum kennurum setja upp vinnustöðvar um allan skólann fyrir nemendur.
Nemendur...
Nánar27.04.2015
Morgunheimsókn foreldra í 1. bekk
Föstudaginn 17. apríl var uppskeruhátíð hjá 1. bekk en þá var lokið þemaverkefninu um líkamann. Börnin buðu foreldrum sínum í morgunheimsókn og fluttu fyrir þau lögin sín úr Ávaxtakörfunni og síðan fór hver bekkur í sína stofu. Þar fræddu börnin...
Nánar27.04.2015
Árshátíð 1. og 2. bekkjar
Fimmtudaginn 16. apríl var árshátíð 1. og 2. bekkjar. Börnin fluttu lög úr Ávaxtakörfunni og leikskólabörn komu í heimsókn. Á eftir nutu allir góðra veitinga af hlaðborði.
Nánar- Fyrri síða
- 1
- ...
- 58
- 59
- 60
- ...
- 72