Unglistadagur þriðjudaginn 30. apríl
29.04.2019
![Unglistadagur þriðjudaginn 30. apríl Unglistadagur þriðjudaginn 30. apríl](/library/Myndir/Myndasafn/Skolaarid-2018-2019/thumb-1920-3589.jpg?proc=ContentImage)
Á morgun þriðjudag er Unglistadagur hér í skólanum en þá vinna nemendur í vinapörum á milli árganga í mismunandi verkefnum á vinnustöðvum um skólann. Þemað í ár er „Vatn“ og þemalitur í klæðnaði er blár. Við hvetjum því alla til að mæta í einhverju bláu á morgun.
Unglistadagurinn er skertur dagur hjá nemendum en kennsla hefst kl. 9:00 og lýkur eftir hádegismat kl. 12:30 en þá tekur Álftamýri við þeim nemendum sem þar eru skráðir. Bókasafn skólans er að venju opið frá kl. 8:00 fyrir þá sem þurfa að mæta fyrr.