Fræðsla frá Samtökunum '78 í 10. bekk
09.06.2015
Í gær 8. júní, fengu nemendur 10. bekkja fræðslu frá Samtökunum ´78. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir fræðslustýra Samtakanna fræddi nemendur meðal annars um kynhneigðir, kynvitund, staðalmyndir, fordóma og réttindabarátt. Nemendur fengu einnig tækifæri til að skrifa spurningar á nafnlaus blöð sem síðan sköpuðust umræður um. Nemendur voru almennt mjög ánægðir með heimsóknina og fannst gott að fá fræðsluna. Það var ýmislegt sem þeir héldu áður en fengu nú vissu fyrir.