Skólastarf fellur niður í fyrramálið 6. febrúar

Þar sem rauð veðurviðvörun er í gildi fimmtudaginn 6. febrúar frá klukkan 8:00-13:00 biðjum við foreldra/forráðamenn í Álftanesskóla að hafa eftirfarandi í huga:
. Á morgun, fimmtudag, verður röskun á skólastarfi Álftanesskóla.
. Fólk er hvatt til að halda sig heima á meðan rauð viðvörun er í gildi og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
. Álftanesskóli verður opinn með lágmarksmönnun þ.e. í ítrustu neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns, en þá erum við að ræða um fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum. Þessir aðilar eru beðnir um að láta skólastjórnendur vita ef þeir hyggjast nýta sér þjónustuna á netfangið annaskula@alftanesskoli.is fyrir miðnætti í kvöld 5. febrúar.
. Frístundaheimilið í Álftanesskóla opnar kl. 13:15, ef veður leyfir.
Sjá tilkynningu frá Almannavörnum á þremur tungumálum.
Tilkynning frá Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins
Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar, hefur verið gefin út rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá kl. 8-13. FÓLK ER HVATT TIL HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU. Á fimmtudag verður röskun á skólastarfi. Grunn- og leikskólar verða þó ekki lokaðir, en halda úti lágmarksmönnun. Í ítrustu neyð þarf að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.
ENGLISH
Announcement from the Emergency Control Centre for the Greater Reykjavik Area
Please note that a red weather warning has been issued for the Greater Reykjavik Area, effective from 08:00 until 13:00 on Thursday, 06 February. PEOPLE ARE URGED TO STAY AT HOME UNTIL THE STORM PASSES OVER TOMORROW AND NOT TO BE OUT UNLESS ABSOLUTELY NECESSARY. Tomorrow, Thursday, there will be disruptions to school operations. Kindergartens and primary schools will remain open but with limited staffing. In such cases, parents should notify the school administrators by email if a child is coming to school.
POLISH
Ogloszenie Sztabu Zarzadzania Kryzysowego Regionu Stolecznego
Prosimy pamietac, ze na jutro czwartek 6 lutego, zostal wydany czerwony alert pogodowy dla regionu stolecznego, obowiazujacy od godz. 8:00 do 13:00.
ZALECA SIE POZOSTANIE W DOMU PODCZAS PRZECHODZENIA FRONTU BURZOWEGO I UNIKANIE PODRÓZY, JESLI NIE SA ONE ABSOLUTNIE KONIECZNE.
W czwartek wystapia zaklócenia w funkcjonowaniu szkól. Szkoly podstawowe i przedszkola pozostana otwarte, ale beda dzialac przy ograniczonym skladzie personelu.
W przypadku skrajnych sytuacji awaryjnych i koniecznosci przyprowadzenia dziecka do placówki, opiekunowie musza powiadomic administracje szkoly zawczasu droga emailowa o planowanej obecnosci dziecka.