Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Búist er við appelsínugulum viðvörunum næstu tvo daga

04.02.2025
Búist er við appelsínugulum viðvörunum næstu tvo daga

Búist er við appelsínugulum viðvörunum næstu tvo daga. Við hvetjum foreldra og forsjáraðila til að fylgjast sérstaklega með fréttum af veðri í dag og næstu daga.

Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar, fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti.

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. ef bifreið er ekki búin til vetraraksturs.

Hér má finna leiðbeiningar til forráðafólks ef röskun verður á skóla- og frístundastarfi vegna óveðurs.

Til baka
English
Hafðu samband