Innritun í grunnskóla 2023-2024 og kynningar í skóla
02.03.2023

Vakin er athygli á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum fyrir skólaárið 2022-2023 er til 1. apríl. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Garðabæjar .
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum fer fram á sama tíma. Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní 2023 fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.
Innritun er rafræn og fer fram á þjónustugátt Garðabæjar.