Útikennsla og hreyfing fer vel af stað
28.10.2013
Í haust hafa nemendur í 5.-7. bekk verið í útikennslu og hreyfingu hjá Írisi og Björgvini í fjölgreinalotu. Lotan hefur farið vel af stað og hafa nemendur tekist á við hin ýmsu verkefni og staðið sig með prýði. Það reynist mörgum nemendum þrautin þyngri að vera klædd eftir veðri en það lærist með tímanum og þau eru fljót að átta sig og sjá kosti þess að klæða sig rétt. Þegar líða fer á veturinn er enn mikilvægara að huga að réttum klæðnaði.