Reglugerð frá menntamálaráðuneyti nr. 1040/2011, kveður á um að allir skólar skuli hafa skráðar reglur og viðurlög við brotum á þeim.
Þetta er einnig nauðsynlegt að hafa til að styðja við þau gildi sem nemendur , kennarar og foreldrar hafa valið sér sem leiðarljós og sem grundvöll að sáttmála í samskiptum.
Almennar reglur – við eigum að:
- Sinna hlutverki okkar
- Láta aðra í friði
- Koma fram af kurteisi
- Bera ábyrgð á eigum okkar og skólagögnum
A. Viðbrögð ef út af bregður - Uppbygging
Uppbygging
|
Skýr mörk - Ófrávíkjanlegar grundvallarreglur:
Ógna öryggi með ögrandi framkomu |
Hindra nám og kennslu |
|
|
Hvað gerist ef ófrávíkjanlegar grundvallarreglur eru brotnar ?
Ef ófrávíkjanlegar reglur eru brotnar beitir kennari eða starfsmaður viðurlögum samstundis án umræðu og vísar þá máli til deildarstjóra/skólastjóra til úrvinnslu.
Ef deildarstjórar eru ekki við er nemendum vísað til aðstoðarskólastjóra eða skólastjóra. Skólastjórnandi tekur ákvörðun um næstu skref. Skólastjórnandi skráir málið og úrvinnslu þess í dagbók nemenda í Mentor og sendir viðkomandi umsjónarkennara tölvupóst um úrvinnslu mála eða gerir honum grein fyrir því með öðrum hætti eins fljótt og unnt er.
Það tekur lengri tíma að vinna og leiðrétta ófrávíkjanlegar grundvallarreglur en að leiðrétta brot á almennri reglu. Aðilar málsins þurfa að ná hugarró áður en hægt er að byrja að leysa alvarleg mál af þessu tagi og gera áætlun um úrbætur.
Hér að neðan eru nefnd viðurlög sem gripið er til ef ófrávíkjanlegar grundvallarreglur eru brotnar. Foreldrar eru ávallt látnir vita ef viðurlögum er beitt.
B. Viðurlögum beitt
Vísanir til annarra |
Viðurlög |
Úrvinnsluleiðir |
|
|
|
*Deildarstjórar, aðstoðarskólastjóri eða skólastjóri taka ákvörðun um það hvort nemenda sé vísað heim eða í frekari úrvinnslu máls.
Við alvarleg agabrot getur komið til brottvísunar án áminningar. Komi brottvísun til framkvæmda eiga nemandi og forráðamenn hans rétt á andmælum samkvæmt 11. og 13. grein stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Verði ágreiningur milli forráðamanna og skólans varðandi málefni nemanda og ekki næst samkomulag á heimavelli getur hvor aðili um sig vísað málinu til skólanefndar grunnskóla Garðabæjar (deildarstjóri grunnskóladeildar Garðabæjar) og síðan menntamálaráðuneytis samkv. greinum 15. og 16. í reglugerð no. 1040/2011 ,,um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélags í grunnskólum“