Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 er kveðið á um sjálfsmat
grunnskóla. Samkvæmt þessum lögum velur skólinn sjálfur þær aðferðir sem hann
hyggst nota við matið. Sjálfsmat á að vera grundvöllur að faglegu starfi og
þróun.
Sjálfsmat er leið til þess að vinna kerfisbundið að gæðum og umbótum í skólastarfi. Sjálfsmat er einnig leið til þess að miðla þekkingu og upplýsingum um skólastarf. Í sjálfsmati skal koma fram stefna og markmið skóla, skilgreining á leiðum til þess að ná þeim, greining á sterkum og veikum hliðum skólastarfs og áætlun um aðgerðir til úrbóta.