Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

 

Álftanesskóli vinnur eftir Samskiptasáttmála Garðabæjar. Markmið samskiptasáttmála Garðabæjar er að auka vellíðan, velferð, lífsgæði og heilsu barna. Alls staðar þar sem fólk kemur saman geta komið upp samskiptamál. Ef gripið er fljótt inn í og með samstilltu átaki heimilis, skóla og annarra ábyrgðaraðila er hægt að minnka líkur á alvarlegum afleiðingum.

Ef grunur vaknar um samskiptavanda eða einelti gagnvart þínu barni eða öðrum er mikilvægt að vitneskja um það berist til skólans sem fyrst. Grun um samskiptavanda / einelti ber að tilkynna með formlegum hætti og hægt er að fylla út með því að fylla út þar til gert eyðublað. Hér er hlekkur á eyðublaðið sem er tilkynning til skóla um samskiptamál.  Athugið að skráning á eyðublaðið fer fram í gegnum island.is  

Í skólunum starfar samskiptateymi sem vinnur þau mál sem tilkynnt eru. Teymið kallar til sína umsjónarkennara og aðra sem geta aðstoðað við vinnslu mála. 

Í teyminu sitja eftirtaldir:

  • Námsráðgjafi Salvör Kristjánsdóttir
  • Deildarstjóri 1. - 10. bekk, Steinunn Sigurbergsdóttir
  • Verkefnastjóri Þorgerður Elín Brynjólfsdóttir

Samskiptasáttmáli Garðabæjar

Stopp ofbeldi! er vefur með fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni.

 

English
Hafðu samband