Skólaheilsugæsla Álftanesskóla
Skólahjúkrunarfræðingur er Eva María Gísladóttir
Netfang: alftanesskoli@heilsugaeslan.is
Viðvera í vetur verður eftirfarandi en hafa ber í huga að um viðmið er að ræða sem að getur breyst:
• Mánudagar 8:30 - 11:40
• Þriðjudagar: 9:00 - 11:40
• Miðvikudagar: 8:30 - 11:40 annan hvenr miðvikudag - hinn á móti kl. 12:30-15:30
• Fimmtudagar: 8:30 - 11:40
• Föstudagar: 8:00 - 11:40
Skólaheilsugæsla er hugsuð sem framhald af ung- og smábarnavernd. Starfsemi heilsuverndar grunnskólabarna er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Hún er meðal annars fólgin í reglubundnum skimunum og eftirliti, ónæmisaðgerðum, heilbrigðisfræðslu og teymisvinnu kringum einstök mál.
Markmiðið með heilsugæslu í skólum er að stuðla að því að börn fái að þroskast við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á. Til þess að vinna að markmiði þessu er fylgst með börnunum svo að möguleg frávik finnist og viðeigandi ráðstafanir verði gerðar sem fyrst. Áhersla er lögð á að fyrst og fremst beri foreldrar ábyrgð á heilsu og þroska barna sinna, en starfsfólk heilsugæslu í skólum fræði, hvetji og styðji foreldra í hlutverki sínu. Á heimasíðu Landlæknis má finna nánari upplýsingar um heilsuvernd grunnskólabarna, bólusetningar(ónæmisaðgerðir), skimanir(skólaskoðun) og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni.
Helstu verkefni skólahjúkrunarfræðings felast í forvörnum, fræðslu, skimunum og bólusetningum.
Slys og óhöpp á skólatíma
Hlutverk hjúkrunarfræðings er ekki að vera með opna móttöku fyrir erindi sem ekki teljast bráð.
Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.
Hjúkrunarfræðingur veitir fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma veikindi og slys hjá nemendum, á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.
Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni. Foreldrum er bent á að snúa sér til heimilislæknis með heilsufarsmál sem ekki teljast til heilsuverndar grunnskólabarna.
Fræðsluefni - ráð til foreldra:
• Lús
• Njálgur
• Heilsuvefurinn www.heilsuvera.is um heilsu frá fagfólki
• Myndbönd
(hvað er lús?/hvernig finnur maður lús?/hvernig meðhöndlar maður lús?/forvörn) www.farvellus.dk