Einelti er endurtekið ofbeldi,
líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einstaklingi sem á
erfitt með að verjast.
Einelti felur í sér misbeitingu á valdi með þeim afleiðingum að þolanda líður
illa og hann finnur til varnarleysis.
Einelti birtist í mörgum myndum, það getur verið:
Líkamlegt: Barsmíðar, spörk, hrindingar…
Munnlegt: Uppnefni, niðrandi athugasemdir, endurtekin stríðni…
Skriflegt: Neikvæð tölvu- og símasamskipti, krot, bréfasendingar…
Óbeint: Baktal, útskúfun, útilokun úr félagahópi…
Efnislegt: Eignum stolið, þær eyðilagðar…
Andlegt: Þvingun til að gera eitthvað
sem stríðir gegn réttlætiskennd og sjálfsvirðing…
Einelti fer oft fram þar sem enginn sér. Sá sem er lagður í einelti vill oft
ekki segja frá því sem gerist svo hann hljóti ekki verra af. Þess vegna er mjög
áríðandi að allir þekki einkenni eineltis.