Ef ljóst er að einelti hefur átt sér stað þarf að skipuleggja einstaklingsbundin viðtöl við þolanda, geranda og forráðamenn (5. gr. um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum)
Í öllum tilvikum er geranda gefin skýr skilaboð um að einelti sé ekki liðið og að skólinn muni með öllum ráðum leitast við að eineltinu ljúki.
Vinnulag í eineltismálum
- samstarf við forráðamenn (5. og 7. gr.)
- almennt eru umsjónarkennari eða staðgengill hans (7. gr.) og aðili úr eineltisteymi skólans saman í viðtölum við bæði þolanda og geranda
- skólinn veitir viðeigandi stuðning við þolanda og geranda þar til máli lýkur
- gerð er áætlun um eftirfylgd
- þar sem það á við skal halda reglulega bekkjarfundi til að styrkja samskipti innan hópsins
- upplýsa skólasamfélagið
- ef um alvarlegt ofbeldi er að ræða er það tilkynnt til nemendaverndarráðs, Fjölskyldusviðs Garðabæjar, heilsugæslu eða lögreglu. Skóli gæti þurft að vísa geranda tímabundið úr skóla (12. og 15. gr.)
- eineltismálum er lokið í samráði við forráðamenn með skriflegum hætti
Einelti heldur áfram
Ef aðgerðir bera ekki árangur þarf að fylgja málinu frekar eftir:
- frekari samvinnu og samráð við forráðamenn þolanda og geranda
- meira eftirlit, viðurlög
- vísa máli til nemendaverndarráðs sem kemur því í viðeigandi farveg
- brjóta upp gerendahóp
- einstaklingsmiðaða atferlismótun
- ráðgjöf hjá sálfræðingi/öðrum sérfræðingum
- tilkynning til Fjölskyldusviðs Garðabæjar
- tilkynning til lögreglu
- náist ekki sátt innan sveitarfélagsins má vísa málinu til fagráðs sem starfar á ábyrgð Mennta- og menningarmálaráðuneytisins (7. gr.)
Öll eineltismál, hvort sem um grun eða staðfestingu er að ræða, eru skráð á sérstakt eyðublað. Skráningin er liður í að hafa yfirsýn yfir eðli og umfang eineltismála í skólanum. Mikilvægt er að ljúka vinnu allra mála í samráði við forráðamenn með skriflegum hætti.