Síma- og snjalltækjareglur frá og með 14.janúar 2019
Síma- og snjalltækjareglur í 1.- 7. bekk:
- Nemandi/foreldri ber fulla ábyrgð á tækinu komi nemandi með það í skólann.
- Snjalltæki eru bönnuð á skólatíma.
- Nemandi má vera með tækið í skólanum, þá slökkt á því og geymt í skólatösku.
- Það er ekki í boði að vera í símanum í frímínútum.
Viðurlög við brotum á reglum í 1.- 7. bekk:
- Starfsmaður tekur snjalltækið af nemanda og afhendir umsjónarkennara sem skráir í Mentor og afhendir tækið í lok dags. Umsjónarkennari lætur forráðamenn vita með tölvupósti.
- Ef tækið hefur verið tekið af sama nemanda þrisvar sinnum boðar umsjónarkennari forráðamenn á fund til að finna úrræði varðandi símanotkun á skólatíma.
- Dugi fyrirhugað úrræði ekki er málinu vísað til stjórnanda.
Síma- og snjalltækjareglur í 8.- 10.bekk:
- Nemandi/foreldri ber fulla ábyrgð á tækinu komi nemandi með það í skólann.
- Snjalltæki/sími sem nemandi er með má ekki hafa truflandi áhrif á nám nemenda.
- Nemandi þarf að hafa leyfi kennara/starfsmanns til að nota snjalltæki/síma í kennslustund.
- Nemendur mega vera í tækjunum í frímínútum, en óskað er eftir því að nemendur séu ekki í því á meðan þeir borða hádegisverð í matsal skólans.
- Myndatökur eru bannaðar nema með leyfi starfsmanna.
- Hljóðupptökur eru bannaðar nema með leyfi starfsmanna.
- Noti nemandi snjalltæki án leyfis kennara skráir kennari truflun á nemanda í Mentor.
Viðurlög við brotum á reglum í 8.- 10.bekk:
Viðurlög verða eftir ákveðinn fjölda skráninga/truflana.
- Brot = 4 truflanir í Mentor: Umsjónarkennari tekur nemanda í viðtal og fer yfir reglurnar og ræðir við viðkomandi um framhaldið.
- Brot = 6 truflanir í Mentor: Eftir 6 truflanir (þ.e. 2 í viðbót) er málinu vísað til stjórnanda sem boðar nemanda og foreldra/forráðamenn á fund.
- Brot = 8 truflanir í Mentor: Eftir 8 truflanir (þ.e. 2 í viðbót) fer nemandi í snjalltækja/símabann í tvær vikur. Annað hvort skilur nemandi tækið eftir heima eða skilar til stjórnanda í upphafi dags.
- Hver truflun eftir fyrsta bann leiðir til tveggja vikna símabanns.
- Allir byrja með hreint borð í ágúst (skólabyrjun) og í janúar (eftir jólafrí).
Tekið skal sérstaklega fram að myndatökur og hljóðupptökur eru bannaðar í húsnæði Álftanesskóla og í starfsstöðvum hans, nema með sérstöku leyfi.
Brot á skýrum mörkum:
Rýri nemandi öryggi einstaklings s.s. með særandi orðum, hljóðupptökum og myndum eða öðrum hætti varðar það við skýr mörk.
Viðurlög skýr mörk:
- Nemandi missir rétt á að vera með síma/snjalltæki í skólanum til lengri tíma (4 - 8 vikur).
- Nemanda getur verið vikið úr skóla á meðan að unnið er úr málinu.
- Foreldrar skrifa undir eyðublað þess eðlis að búið sé að eyða gögnum úr símum sé eðli málsins með þeim hætti.