Foreldrar eru afar mikilvægir samstarfsaðilar kennara og nemenda þegar kemur að skólastarfi.
Góð samskipti milli heimilis og skóla eru lykilatriði þegar kemur að námi, hvort heldur er heimanámi eða því sem fer fram í skólanum.
Áhugi foreldra á náminu og skólastarfinu í heild er hvatning fyrir alla aðila, nemendur, kennara og foreldra.
Í Álftanesskóla starfar Foreldrafélag Álftanesskóla.
Allir foreldrar og forráðamenn sem eiga börn í skólanum eru sjálfkrafa félagsmenn í Foreldrafélagi Álftanesskóla.
Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja skólann í hvívetna.
Markmiðinu hyggst félagið m.a. ná með því að:
• skapa samstarfsvettvang fyrir foreldra sem eiga börn í skólanum
• efla tengsl heimilis og skóla
• stuðla að velferð nemenda skólans
• koma á umræðufundum um skóla- og uppeldismál
• veita skólanum lið svo aðstæður til náms og félagslegra starfa verði samkvæmt kröfum hvers tíma
• veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum
• efla samstarf við foreldrafélög í öðrum skólum í Garðabæ í gegnum Grunnstoð sem er samstarfsvettvangur foreldrafélaga grunnskóla í Garðabæ
Foreldrafélag Álftanesskóla er á Facebook: https://www.facebook.com/ForeldrafelagAlftanesskola/
Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að "líka við" síðuna. Á síðunni eru reglulega kynntir viðburðir á vegum foreldrafélagsins, skemmtanir, námskeið og ýmiskonar fróðleikur.
Netfangið er: foreldrafelag@alftanesskoli.is