Álftamýri er opin alla virka daga nema hefðbundna frídaga frá lok skóla til kl. 16.30.
Starfstími frístundaheimila miðast við skólaárið eins og það er hverju sinni og kemur fram á skóladagatali.
Í jóla-, páska- og vetrarfríi eru frístundaheimilin opin allan daginn á virkum dögum nema aðfangadag og gamlársdag (sbr.opnun leikskóla í Garðabæ). Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Þetta skal kynnt í tölvupósti öllum foreldrum barna með þriggja vikna fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Sérstaklega þarf að greiða fyrir dvöl fyrri hluta dags hjá þeim börnum sem eru skráð til dvalar eftir skólatíma.
Á starfsdögum kennara og þá daga sem kennsla fellur niður vegna foreldraviðtala eru frístundaheimilin opin allan daginn. Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Þetta skal kynnt í tölvupósti öllum foreldrum barna með 3 vikna fyrirvara. Skrá skal börnin með minnst 10 daga fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Gert er ráð fyrir að samstarfi frístundaheimilanna t.d. í jóla-, páska- og vetrarfríi sem og á starfsdögum og foreldradögum.