Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Einstaklingsnámskrár

Deildarstjóri stoðþjónustu ákveður í samvinnu við foreldra, umsjónarkennara og /eða sérkennara, og þroskaþjálfa hvort nemandi þurfi einstaklingsnámskrá. Ef nemandi fylgir ekki eftir námsmarkmiðum bekkjar er útbúin einstaklingsnámskrá sem tekur mið að færni hvers og eins. Nemandi getur verið með einstaklingsnámskrá  í einu fagi eða fleirum allt eftir færni og getu. Miðað er við að nemendur víki verulega frá í allt að þremur námsgreinum og/eða nemendur sem eru með veruleg frávik í hegðun vinni samkvæmt einstaklingsnámskrá. 

Allar einstaklingsnámsskrár eru gerðar með samþykki   foreldra. Þverfagleg samvinna er á milli umsjónarkennara, kennara, sérkennara og þroskaþjálfa og eru hlutverk hvers og eins skilgreind gagnvart námi nemandans. Staða nemandans er skilgreind, markmið, leiðir og námsmat. Námsmarkmið/ einstaklingsnámskrár eru endurskoðaðar reglulega og við lok hvers skólaárs er gert endurmat og gerðar tillögur að námsmarkmiðum fyrir næsta skólaár.

English
Hafðu samband