Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Upphaf skólagöngu eru mikil tímamót bæði fyrir foreldra og barnið. Nú hefst vonandi langt og farsælt samstarf heimilisins og skólans um menntun og velferð barnsins þíns.
Hér er á eftir eru nokkrir punktar fyrir þig að hafa í huga:

  • Þú berð höfuðábyrgð á menntun barnsins samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla
  • Mikilvægt er að mæta á námskeið og fundi fyrir foreldra 1. bekkinga
  • Röltu með barninu um skólalóðina og helst um skólann, utan annatíma
  • Finndu bestu leiðina í skólann og farðu hana nokkrum sinnum með barninu og leiðbeindu því
  • Veldu skólatösku við hæfi, hafðu barnið með því það þarf að máta skólatöskuna líkt og föt
  • Aðgættu að barnið sé ekki að bera of þunga tösku og að þyngstu bækurnar séu sem næst bakinu
  • Sendu barnið alltaf með nægt og hollt nesti í skólann
  • Veittu barninu ríkulega hlýju, stuðning og áhuga
  • Gætt þess að hafa nægan tíma fyrir barnið daglega meðan það er að aðlagast skólanum
  • Mundu rétt þinn til 13 vikna launalauss foreldraorlofs, ef til vill er þetta rétti tíminn til að nýta sér það?
  • Vertu í sambandi við kennarann, best er að þið styðjið hvert annað því sameiginlegt markmið ykkar er: Velferð barnsins!
  • Mikilvægt er að styðja við heimanám barnsins og að láta það lesa á hverjum degi.

Hér á vef skólans má nálgast ýmsar upplýsingar um skólann s.s. skólareglur, upplýsingar um Tómstundaheimilið, matarmál og ýmsa stoðþjónustu. Við hvetjum ykkur eindregið að kynna ykkur þessar upplýsingar og skóladagatal komandi skólaárs. Þar er einnig að finna krækju á umsóknareyðublöð eins og t.d. umsókn og samning um dvöl á Tómstundaheimilinu.

Þegar barnið byrjar í skólanum fá foreldrar aðgang að Fjölskylduvef Mentor. Þar verður hægt að nálgast ýmsar upplýsingar s.s. bekkjarlista, heimavinnuáætlun, ástundun og fleira. Tölvupóstur er einnig sendur reglulega frá skólanum bæði af umsjónarkennara og/ eða öðrum starfsmönnum varðandi skólastarfið.

Þið eruð ávallt velkomin/n í skólann
Hlökkum til að sjá ykkur  :-)
English
Hafðu samband