Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kærleikar 24. og 25. nóvember

21.11.2022
Kærleikar 24. og 25. nóvemberKærleikarnir eru á fimmtudag og föstudag, þá vinna nemendur saman í vinapörum. Kærleikarnir eru á hverju ári og þá er lögð áhersla á vinnu í tengslum við Uppeldi til ábyrgðar sem er stefnan sem skólinn vinnur eftir. Á hverju ári er ein þörf tekin fyrir og að þessu sinni er það þörfin "Áhrif". Nemendur vinna ýmis tengd verkefni og eitt af þeim er að búa til tákn þarfarinnar en stjarna er tákn áhrifs. Stjörnurnar verða svo bornar út í hús á Álftanesi.
Til baka
English
Hafðu samband