Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Forvarnarvika hefst

05.10.2022
Forvarnarvika hefst

Hin árlega forvarnarvika Garðabæjar er haldin dagana 5. – 12. október en markmið hennar er að vekja athygli á mikilvægum og fjölbreyttum þáttum í forvarnarstarfi ásamt því að virkja bæjarbúa til þátttöku. Þema þessarar forvarnarviku er; Farsæld – foreldrahlutverkið og samvera.

Nemendur Álftanesskóla munu vinna ýmis verkefni þessa daga sem falla undir þema vikunnar sem og önnur verkefni sem falla undir slagorð skólans sem er; Allir eru einstakir.  Meðal annars verður rætt um hvað er farsæld, fjölskylduna, samveru og líkamsvirðingu.

Í dag, miðvikudag, lukum við átakinu Göngum í skólann og hófum forvarnarvikuna á göngutúr og spilastund  í vinabekkjum.

Perlað með Krafti – Lífið er núna

Fimmtudaginn 6. október munu nemendur og starfsfólk Álftanesskóla leggja góðu málefni lið með því að perla armbönd til styrktar Krafti. Kraftur er félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Fulltrúar Krafts mæta í skólann á fimmtudaginn með efni í armböndin og leiðbeina okkur og aðstoða. Við munum perla í matsalnum á mismunandi tímum en að öðru leyti verður stundaskrá hefðbundin.

Nemendur geta keypt armbönd, ný kosta 2.900 krónur en einnig verður hægt að kaupa eldri týpur armbanda á 2.500 kr.

Forvarnarvikan er einnig kjörið tækifæri fyrir bekkjarfulltrúa og foreldra til að skipuleggja bekkjarkvöld eða skemmtilega samveru í bekknum/árganginum.

Til baka
English
Hafðu samband