Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skipulagsdagur 20. sept. og Lesið í Nesið 21. sept.

13.09.2022
Skipulagsdagur 20. sept. og Lesið í Nesið 21. sept.

Þriðjudaginn 20. september er skipulagsdagur í grunnskólum Garðabæjar og því frí hjá nemendum. Álftamýri er opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Miðvikudaginn 21. september er hinn árlegi útikennsludagur Lesið í Nesið hjá okkur í Álftanesskóla. Þetta er skertur skóladagur þannig að nemendur mæta kl. 9:00 í skólann og fara heim að hádegisverði loknum. Álftamýri tekur við þeim nemendum sem eru þar skráðir eftir hádegisverð. 

Vinsamlega sendið nemendur klædda eftir veðri þar sem gert er ráð fyrir útiveru þennan dag. 

Til baka
English
Hafðu samband