Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Akstur frístundabílsins hefst 29. ágúst

24.08.2022
Akstur frístundabílsins hefst 29. ágúst

Til að börn geti nýtt sér frístundabílinn er nauðsynlegt að skrá þau í bílinn. Hvort sem barnið er í frístundaheimili eða ekki þarf að skrá það í frístundabílinn í gegnum Völu vetrarfrístund í upphafi annar. Velja þarf hvar barnið tekur bílinn, tíma dags og hvert það er að fara. Kostnaður fyrir haustönn 2022 er 8.000 kr og verður greiðsluseðill sendur út í byrjun október.  Skráning í frístundabílinn hefst föstudaginn 19. ágúst. Hér má finna leiðbeiningar um skráningarferlið í Völu.


Frístundabíllinn ekur á starfstíma skólanna alla virka daga kl. 14.15-17:10, frá 29. ágúst til 19. desember á haustönn og frá 2. janúar til og með 7. júní, með hléi í páskafríinu á vorönn. Frístundabíllinn ekur í vetrarfríi skóla í febrúar sem og á starfsdögum skóla í Garðabæ.

Leiðakerfi skólaársins 2022-2023*

Leið 1: Bíll fer eina ferð fram og til baka frá Mýrinni til Barnaskóla Hjallastefnunnar með viðkomu í Tónlistarskóla, (Vetrarmýri), Miðgarði og Ásgarði á hverjum 30 mínútum. Fyrsta ferð dagsins er frá Mýrinni kl. 14:15 og síðasta ferð frá Mýrinni er kl. 16:45.

Leið 2: Bíllinn hefur akstur við Urriðaholtsskóla kl. 14:05, 14:45 og 15:25. Kemur við í Barnaskóla Hjallastefnunnar á leið í Ásgarði í fyrstu ferð (v/fimleika) og stoppar í Ásgarði, Sjálandsskóla og TG. Bíllinn fer í Mýrina og Miðgarð eftir þörfum barnanna v/ knattspyrnu, handbolta og sundæfinga.

Leið 3: Bíll fer frá Álftanesi með börn í frístundir tvisvar á dag. Fyrsti bíll er kl. 14:20. Á þriðjudögum og miðvikudögum fer hann í Miðgarð.

Skráning í frístundabílinn er í gegnum Völu frístund og hefst skráning föstudaginn 19. ágúst. Hægt er að fara beint inn á Völu með því að smella hér.

Aðrar fyrirspurnir má senda á karijo@gardabaer.is

*Athugið að upplýsingar um leiðir og tíma gætu breyst þar sem ekki eru komnar staðfestar upplýsingar um allar æfingar haustsins.

Til baka
English
Hafðu samband