Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Geðlestin með fræðslu fyrir unglingastigið

18.03.2022
Geðlestin með fræðslu fyrir unglingastigið

Í dag fengu nemendur á elsta stigi Geðlestina frá Geðhjálp í heimsókn með erindi á þeirra vegum og í lokin tók MC Gauti lagið með krökkunum. Hér má sjá nokkrar myndir.

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Verkefnið er styrkt af félagsmála- og heilbrigðisráðuneytunum.

Til baka
English
Hafðu samband