Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Líðan Unglinga í Garðabæ - mið kl. 20:00 opinn fundur í beinu streymi

07.04.2021
Líðan Unglinga í Garðabæ - mið kl. 20:00 opinn fundur í beinu streymi

Nýjar upplýsingar um hagi og líðan barnanna okkar. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!  

Miðvikudag 7. apríl kl. 20:00 – opinn fundur í beinu streymi

  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk.
    Könnunin var framkvæmd í febrúar 2021 meðal nemenda í 5.-10. bekk í öllum skólum landsins. Í könnuninni er spurt um hegðun og líðan barnanna, notkun samfélagsmiðla og tölvuleikja, heilsu og líðan, svefn og klámnotkun. Skoða má niðurstöður könnunarinnar á landsvísu á vefnum https://www.rannsoknir.is.
  • Fulltrúar frá Grunnstoð Garðabæjar (fulltrúar foreldrafélaga í grunnskólum Garðabæjar) segja í byrjun fundar frá grunnstoðinni og foreldrarölti sem er verið að setja af stað aftur í maí eftir nokkurra ára hlé.

    Við hvetjum foreldra barna og ungmenna í Garðabæ til að þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að fá upplýsingar um líðan barnanna okkar og hvað raunverulega er að gerast í umhverfinu okkar.

    Fundurinn verður í beinu streymi hér á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu Garðabæjar og foreldrar allra árganga grunnskólabarna og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum. Hægt er að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum fésbókarsíðu Garðabæjar.

    Sjá viðburð á fésbókarsíðu Garðabæjar.
Til baka
English
Hafðu samband