Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Páskaleyfi og skólastarf að því loknu

03.04.2020
Páskaleyfi og skólastarf að því loknuKæru foreldrar / forráðamenn 

Nú er að ljúka 3 vikna breyttu skólastarf og skipulag verður óbreytt eftir páska að minnsta til 4. maí. Við viljum þakka ykkur fyrir hversu vel hefur gengið og viljum árétta mikilvægi þess að nemendur mæti í skólann. Hér fyrir neðan eru upplýsingar frá Almannavörnum sem við viljum biðja ykkur foreldra að virða hvort sem skólastarf sé í gangi eða ekki. Skólastarf hefst að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 14. apríl. 

Gleðilega páska og farið varlega. 

Bestu kveðjur 
Stjórnendur Álftanesskóla 

Samskipti nemenda innan og utan skóla. 
Skólar, leikskólar og íþróttafélög hafa skipulagt vandlega fyrirkomulag næstu daga og vikur til að fara eftir fyrirmælum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi og samkomum.
Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi á sama tíma úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki gegn þessum ráðstöfunum. Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi í skólastarfinu ættu ekki að vera í návígi utan skóla.

Hafi börnin þroska til að fara eftir leiðbeiningum sem snúa að minni snertingu við vini er ekki útilokað að þau geti hist í leikjum. Leikirnir mega ekki fela í sér beina snertingu, notkun á sameiginlegum leikföngum eða búnaði sem snertur er með berum höndum.

Börn og ungmenni ættu ávallt að þvo sér vel um hendur bæði áður en þau hitta félaga sína og eftir að þau koma heim.

Fjölskyldur ættu að hafa í huga að ef börnin umgangast mikið vini eða frændsystkini úr öðrum skólum eða skólahópum þá verður til tenging milli hópa sem annars væru aðskildir. Slíkt ætti að forðast eins og kostur er.

Fjölskyldur eru hvattar til að nýta sér tæknina til að halda góðum tengslum við ástvini sem eru í áhættuhópum vegna COVID-19 sýkinga, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. 

Einnig væri hægt að nota tækifærið að kenna börnunum að skrifa sendibréf og æfa í leiðinni skrift, stafsetningu, virkja ímyndunaraflið og hugsa í lausnum þegar kemur að samskiptum við ástvini okkar.
 
Til baka
English
Hafðu samband