Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námsgögn fyrir nemendur í grunnskólum Garðabæjar

01.08.2017
Námsgögn fyrir nemendur í grunnskólum GarðabæjarBæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í morgun, þriðjudaginn 1. ágúst,  að greiða fyrir námsgögn að upphæð 5000 kr fyrir hvern nemanda í grunnskólum Garðabæjar skólaárið 2017-2018 eða um 12.500.000 kr miðað við um 2500 nemendur.  

Með námsgögnum er m.a. átt við stílabækur, blýanta, liti, gráðuboga o.fl. til notkunar í skólunum.  Nánari útfærslu var vísað til fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar og grunnskólanna.  Bæjarráð lagði jafnframt áherslu á að hagræðingar verði gætt við útfærsluna og bestu tilboða leitað.  Með þessu vill Garðabær m.a. stuðla að hagkvæmni og umhverfisvænni leiðum í skólastarfi.

Upplýsingar fyrir foreldra

Foreldrum er bent á að eftir er að uppfæra upplýsingar vegna þessa og innkaupalistar skólanna verða endurskoðaðir. Nánari upplýsingar fyrir foreldra grunnskólabarna verða birtar á vefjum skólanna í síðasta lagi um miðjan ágúst mánuð. 
Til baka
English
Hafðu samband