Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Helga Sigríður í 2. sæti í Stóru upplestrarkeppninni

24.03.2017
Helga Sigríður í 2. sæti í Stóru upplestrarkeppninni

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kirkjuhvoli,  safnaðarheimili Vídalínskirkju, fimmtudaginn 23. mars. Á hátíðinni lásu nemendur í 7. bekk úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Valhúsaskóla svipmyndir úr skáldverki og ljóð. Skáld keppninnar í ár voru Andri Snær Magnason og Steinunn Sigurðardóttir.

Keppendur Álftanesskóla voru: Valgerður Eyja Eyþórsdóttir, Helga Sigríður Kolbeins og Lilja Dögg Jóhannsdóttir var varamaður. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, afhenti öllum lesurum viðurkenningu fyrir þátttöku í lokahátíðinni  og þrír bestu lesararnir fengu verðlaun.

Helga Sigríður Kolbeins var í öðru sæti. Keppendur stóðu sig frábærlega bæði í undirbúningi og sjálfri keppninni. 

Hér má sjá myndir

Til baka
English
Hafðu samband