Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Innritun nemenda

20.02.2017
Innritun nemenda

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2011) og 8. bekk (f. 2004) fer fram dagana 1. - 31. mars nk. Innritað er á vef Garðabæjar www.gardabaer.is. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 31. mars nk.

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.- 9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 31. mars nk.
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á tómstundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á
 vef Garðabæjar www.gardabaer.is. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á tómstundaheimilum. 

Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:


Álftanesskóli sími 540-4700,
www.alftanesskoli.is
Flataskóli sími 513-3500,
www.flataskoli.is
Garðaskóli sími 590-2500,
www.gardaskoli.is
Hofsstaðaskóli sími 590-8100,
www.hofsstadaskoli.is
Sjálandsskóli sími 590-3100,
www.sjalandsskoli.is
Barnaskóli Hjallastefnunnar sími 555-7710,
www.hjalli.is/barnaskolinn

Alþjóðaskólinn sími 590-3106,  www.internationalschool.is

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og  sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2017-2018 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt á vef Garðabæjar  
www.gardabaer.is

Hér má sjá yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar haust 2017 

Deildarstjóri skóladeildar Garðabæjar.   

Til baka
English
Hafðu samband