4. bekkur stykir Krabbameinsfélagið
14.02.2017
Á Jóla- og góðgerðadeginum þann 26. nóvember síðastliðinn var 4. bekkur með sitt árlega Lukkuhjól þar sem safnað er til góðgerðamála og alls söfnuðust 80.000 kr.
Að þessu sinni völdu nemendur að styrkja Krabbameinsfélagið um 40.000 kr. og Barnaspítala Hringsins um 40.000 kr. Krabbameinsfélaginu var afhendur styrkurinn í dag og munu krakkarnir afhenda styrkinn til Barnaspítalans þann 28. febrúar næstkomandi.
Hér má sjá myndir