Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

30.09.2016
Göngum í skólann

Nemendur og starfsmenn skólans tóku þátt í verkefninu Göngum í skólann mánudaginn 26. sept í blíðskaparveðri. Nemendur höfðu val um að ganga eða hjóla þar sem Álftanesið er kjörið fyrir hvoru tveggja. Skólinn hefur ávallt hvatt bæði nemendur sem og starfsmenn til að ganga eða hjóla í skólann en það er hluti af Grænfána- og sjálfbærniverkefnum skólans sem stuðla að heilbrigði og velferð.

Markmið verkefnisins er meðal annars að hvetja alla til aukinnar hreyfingar, stuðla að heilbrigðum lífsstíl, draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum, auka samfélagsvitund um hversu gönguvænt umhverfið er og síðast en ekki síst til að kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli.

 

Myndir frá deginum

Til baka
English
Hafðu samband